Icelandic


Því að allir hafa syndgað og skortir Guðs dërð.
Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefndum hver sina leið.
Það liggur fyrir mönnunum eitt sinn að deyja, en eftir það er dómurinn.
Laun syndarinnar er dauði.
Enginn getur séð guðsriki, nema hann endurfæðist.
Það, sem af holdinu er fætt, er hold, og það, sem af Andanum er fætt, er
andi.
Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.
Maðurinn réttlætist ekki af lögmálsverkum.
Því að af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú; og það er ekki yður að þakka,
heldur Guðs gjöf. Ekki af verkum, til þess að enginn skuli geta þakkað sér það
sjalfum.
Jesús sagði: Ég er vegurinn og sannleikurinn og lífið; enginn kemur til
föðurins nema fyrir mig.
Ekki er hjálpræðið i neinum öðrum, því að eigi er heldur undir himninum annað
nafn, er menn kunna að nefna, sem oss sé ætað að verða hólpnir fyrir.
Guð hefir ekki ætlað oss til reiði, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir
Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss.
Guð elskaði svo heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem
á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum.
Þvi að Kristur leið lika einu sinni fyrir syndir, réttlátur fyrir rangláta,
til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.
Náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum.
Fyrir því getur hann og til fulls frelsað þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir
Guð, þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim.
Hann megnar að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dërð
sína, lëtalausa í fögnuði.
Með því að hann hefir liðið, þar sem hans sjálfs var freistað, er hann fær um
að fulltingja þeim, er verða fyrir freistingu.
Ef þannig einhver er í Kristi, er hann në sköpun, hið gamla varð að engu, sjá,
það er orðið nëtt.
Guð, boðar nú mönnunum, að þeir allir skuli alstaðar gjöra iðrun.
Trú þú á Drottin Jesúm, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.
Ef ver jatum syndir vorar, þa er hann trur og réttlátur, svo að hann
fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.
Því að ef þú játar með munni þínum Drottin Jesum og trúir með hjarta þínu, að
Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða; því að með hjartanu er
trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.